flugfréttir
Vonir um endurreisn Flybe fara dvínandi
- Urðu ekki fyrir valinu í útboði á flugrekstri fyrir Aer Lingus
DeHavilland Dash 8 Q400 flugvélar frá Flybe
Vonir um að hægt verði að endurreisa Flybe og koma hinu gjaldþrota flugfélagið aftur á fót hafa farið dvínandi eftir að félagið var ekki valið í útboði á flugrekstri á einstaka flugleiðum á Írlandi fyrir hönd Aer Lingus.
Nýtt flugfélag, sem nefnist Emerald Airlines, var valið til þess að annast flugrekstur Aer Lingus en Flybe var eitt af mörgum
flugfélögum sem sóttu um að fá að fljúga innanlandsflug á Írlandi en meðal annarra flugfélag sem sóttu einnig um voru
Loganair og Stobart Air.
Stobart Air hefur sinnt flugrekstri fyrir Aer Lingus sl. áratuginn og vonaðist félagið til þess að verða valið til þess að minnsta kosti
næstu 10 árin en félagið varð hinsvegar ekki fyrir valinu.
Flybe var eitt af þeim fyrstu flugfélögum sem urðu gjaldþrota eftir að kórónaveirufaraldurinn kom upp og hætti félagið
rekstri þann 5. mars í vor.
Hópur fjárfesta hefur nú keypt allar eignir úr þrotabúi Flybe og er hugmyndin að endurreisa flugfélagið í smærri mynd
en Flybe var eitt stærsta lágfargjaldaflugfélag Bretlands sem flaug 119 flugleiðir til 56 áfangastaða og hafði félagið 63
flugvélar í flota sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.