flugfréttir
Íhuga að hefja aftur flug til Noregs vegna eftirspurnar
Airbus A320neo þota frá Atlantic Airways á flugvellinum í Vágar í Færeyjum
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways íhugar nú að hefja aftur flug til Noregs vegna aukinnar eftirspurnar eftir flugsamgöngum á milli Færeyja og Noregs.
Fram kemur að fjöldi Færeyinga sækja vinnu til Noregs en í dag þurfi þeir að fljúga til
Kaupmannahafnar og fara svo þaðan með öðru flugi til Noregs.
Vandamálið er hinsvegar að Færeyingar þurfa ekki að fara í sóttkví við komuna til Noregs
ef þeir fljúga þangað beint en með millilendingu í Danmörku þurfa þeir að fara í sóttkví þar
sem Danmörk er á rauðum lista hjá Norðmönnum.
Vegna þessa hefur stjórn Atlantic Airways tekið til skoðunar að koma aftur á beinu flugi til Noregs en fyrir
heimsfaraldurinn þá flaug félagið frá Vágar til Bergen.
„Það hafa margir haft samband við okkur og hvatt okkur til þess að hefja aftur flug til Noregs og eru þetta sérstaklega sjómenn og svo þeir sem starfa í orkuiðnaðinum sem þurfa að komast til Noregs“, segir Jóhanna á Bergi, framkvæmdarstjóri Atlantic Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.