flugfréttir
Norwegian sækir um gjaldþrotavernd á Írlandi
Boeing 737-800 þota Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló í Noregi
Þar sem að norska ríkisstjórnin hefur neitað flugfélaginu Norwegian um frekari fjárhagsaðstoð þá hefur félagið óskað eftir gjaldþrotavernd til írsku ríkisstjórnarinnar fyrir dótturfélögin Norwegian Air International, sem er með skráð flugrekstarleyfi á Írlandi, og dótturfyrirtækið Arctic Aviation Assets.
Arctic Aviation Assets er í eigu Norwegian og sér það fyrirtæki um rekstur flugflota félagsins auk þess sem félagið leigir
út Airbus-þotur sem eru í eigu Norwegian til annarra flugfélaga.
Með þessu vonast Norwegian til að fá vernd frá lánadrottnum á meðan á endurskipulagningu flugfélagsins stendur yfir
auk þess að minni útgjöld gætu dregið úr núverandi skuldum félagsins.
Þá er gjaldþrotaverndinni ætlað að vernda eignir Norwegian á meðan verið er að leita leiða til að auka rekstrarfé
Norwegian og er talið að þetta ferli muni taka um fimm mánuði.
„Við höfum ákveðið að sækja um gjaldþrotavernd samkvæmt írskum lögum til þess að tryggja framtíð Norwegian og
huga að hag starfsfólks, viðskiptavina okkar og fjárfestum og vonumst við til þess að við komumst í gegnum þessa erfiðleika
sem öflugra flugfélag“, segir Jacob Schram, framkvæmdarstjóri Norwegian.
Schram segir að Norwegian sé að finna lausnir á fjárhagsvanda félagsins ásamt fjárfestum til þess að tryggja eins mörg störf og hægt er. Í augnablikinu er Norwegian aðeins að fljúga sex þotum og mun félagið fljúga í vetur aðeins innanlandsflug í Noregi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.