flugfréttir
Mjög mikilvægt að koma flugsamgöngum í lag aftur
- Spurning upp á líf og dauða fyrir sum svæði að hafa flugsamgöngur
Nicholas Notebaert, formaður VINCI Airports í Frakklandi
Mjög mikilvægt er að lönd afnemi ferðatakmarkanir til að flugsamgöngur komist aftur í eðlilegt horf sem fyrst.
Þetta sagði Nicholas Notebaert, formaður flugvallarfélagsins VINCI Airports sem sér um rekstur 45 flugvalla í
Frakklandi og víðar um heim, en Nicholas kom fram á rafrænni útgáfu af ráðstefnu alþjóðasamtaka flugvalla í
Evrópu (ACI Europe).
Nicholas segir það að koma aftur á samgöngum sé spurning upp á líf og dauða í mörgum löndum þar sem aðgangur
að læknisþjónustu eða það að fá að heimsækja ættinga og ástvini er eingöngu hægt með flugsamgöngum.
Þá segir Nicholas að mikilvægt sé að breyta fyrirkomulaginu með hvernig farið er með lendingarpláss og verði
að úthluta þeim plássum sem flugfélögin eru ekki að nota í dag til annarra flugfélaga eða flugrekenda til að skapa
ný tækifæri.
„Það þarf að koma eftirspurninni aftur í gang og minni flugvellir þurfa að ná að þrífast og lifa af þennan faraldur og
því þurfa ríkisstjórnir að styðja við bakið á þeim“, segir Eamonn Brennan, yfirmaður hjá Eurocontrol, sem bendir
á mikilvægi þess að tengingar í flugi glatist ekki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.