flugfréttir

Flugfélögin þurfa allt að 10.000 milljarða til viðbótar

23. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

IATA hefur spáð því að flugiðnaðurinn á ekki eftir að uppskera sama farþegafjölda líkt og var árið 2019 fyrr en árið 2024

Flugfélög heimsins þurfa allt að 80 milljarða Bandaríkjadali til viðbótar í fjárhagsaðstoð til þess að þrauka í gegnum heimsfaraldurinn eða sem nemur 10.900 milljörðum króna.

Þetta er mat Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA) sem telur að flugfélögin þurfi það sem nemur helmingnum af þeirri upphæð sem þau hafa nú þegar fengið í styrki frá stjórnvöldum í sínum löndum.

„Við erum mjög þakklát fyrir það að ríkisstjórnir heimsins hafa nú þegar varið um 160 milljörðum Bandaríkjadölum til flugfélaganna“, sagði Alexandre de Juniac, yfirmaður IATA, sl. föstudag.

Alexandre segir að á næstu mánuðum verði flugfélögin að fá um 70 til 80 milljarða dali við viðbótar en án þess munu einhver flugfélög ekki ná að þrauka faraldurinn af.

Þótt að bóluefni við Covid-19 sé rétt handan við hornið þá er talið að enn séu einhverjir mánuðir í að fjöldi flugfarþega fari að aukast að einhverju ráði.

Fram kemur að því sé spáð að í heildina eigi tap flugfélaganna á þessu ári eftir að nema yfir 11.800 milljörðum króna og segir Alexandre að mögulegt sé að tapið eigi eftir að verða meira þegar árið er á enda og þessvegna náð 13.000 milljörðum.

IATA hefur spáð því að flugiðnaðurinn á ekki eftir að uppskera sama farþegafjölda líkt og var árið 2019 fyrr en árið 2024 og er talið að á næsta ári verði farþegafjöldinn mögulega komin í 50 til 60% af þeim fjölda farþega sem ferðuðust með flugi í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga