flugfréttir

Hvetja fólk til þess að taka lestar í stað þess að fljúga

23. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:47

Með verkefninu „Action Agenda for Train and Aviation

Innviðaráðuneyti Hollands hefur kynnt herferð og niðurstöður úr rannsókn sem er ætlað að hvetja almenning til þess að taka lestir frekar en flug er kemur að samgöngum á styttri vegalengdum innan Evrópu til og frá Hollandi.

Verkefnið sem nefnist „Action Agenda for Train and Aviation“ er samstarfsverkefni Schiphol-flugvallarins í Amsterdam, ProRail lestarfyrirtækisins, KLM flugfélagsins og innviðaráðuneyti Hollands og var niðurstaða verkefnisins kynnt fyrir hollenska þinginu á dögunum.

Markmið verkefnisins er að kynna lestarsamgöngur sem hagkvæman kost fyrir ferðalög sem eru styttri en 700 kílómetrar og kemur fram að lestar séu rökréttari valkostur og eru nefndir sjö áfangastaðir sem sniðugra væri að ferðast til frá Amsterdam heldur en með flugi sem eru Brussel, París, London, Frankfurt, Dusseldorf og Berlín.

Bent er á að með lestum væri einnig verið að létta á flugumferðinni yfir norðvesturhluta Evrópu sem er eitt þéttasta flugumferðarsvæði heims og kemur fram að lestar fara á milli Amsterdam og Parísar tólf sinnum á dag.

KLM hafði fyrir heimsfaraldurinn skipt út einu af fimm daglegum flugferðunum til Brussel fyrir lestarferð í samstarfi við lestarfyrirtækið Thalys

Þá hefur KLM Royal Dutch Airlines einnig unnið að því að fækka flugferðum í skiptum fyrir lestarsamgöngur en flugfélagið hollenska flaug fimm sinnum á dag til Brussel fyrir heimsfaraldurinn en dró úr tíðninni niður í fjórar flugferðir í skiptum fyrir eina aukalega lestarferð á vegum lestarfyrirtækisins Thalys.

Þá hefur KLM verið í samstarfi við lestarfyrirtækið AirRail þar sem farþegi getur til að mynda flogið frá Hong Kong til Brussel í gegnum Amsterdam en tekið lest í stað flugs frá Amsterdam til Brussel.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga