flugfréttir

Hafa ekki not fyrir tvær flugstöðvar á Brandenburg

- Íhuga að loka Terminal 5 sem áður tilheyrði Schönefeld-flugvellinum

24. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:19

Frá Brandenburg-flugvellinum í Berlín

Stjórn Brandenburg-flugvallarins í Berlín íhugar nú að loka annarri flugstöðinni vegna þess hversu fáir farþegar fara um flugvöllinn vegna kórónaveirufaraldursins.

Um er að ræða flugstöðina Terminal 5 sem var áður hluti af Schönefeld-flugvellinum sem til stóð að nota áfram ásamt aðalflugstöðvarbyggingunni, Terminal 1, en nú hefur komið í ljós að ekki eru not fyrir allt það gríðarlega pláss sem fylgir því að starfrækja Terminal 5 flugstöðina á meðan farþegafjöldinn er í algjöru lágmarki.

Til stóð að hafa Terminal 5 opna áfram en Lütke Daldrup, framkvæmdarstjóri Brandenburg-flugvallarins, segir að líklega þurfa að loka flugstöðinni fljótlega þar sem tvær flugstöðvar eru óþarfar eins og staðan er í dag.

„Vegna þess hversu hægt farþegum hefur fjölgað þá verðum við að skoða hvort það sé þörf fyrir Terminal 5 árið 2021“, segir Daldrup en flugstöðin yrði þó allavega opin fram í mars þar sem flugfélög ná ekki að flytja sig yfir á Terminal 1 nema með fyrirvara.

Þau flugfélög sem nota Terminal 5 í dag eru Ryanair, SunExpress og Sundair en þau flugfélög færðu sig yfir á Brandenburg-flugvöllinn þegar Tegel-flugvellinum var lokað.

Staðan er því í dag að Brandenburg-flugvöllurinn er of stór er kemur að flugstöðvarbyggingum en áður en heimsfaraldurinn skall á var talið að flugvöllurinn væri of lítill þar sem opnun vallarins hafði frestast um næstum áratug og hafði á þeim tíma gríðarleg farþegaaukning átt sér stað í heiminum og var talið að ráðast þyrfti strax í stækkun flugvallarins um leið og hann opnaði með stærri flugstöð.

Til stóð að opna flugstöðina Terminal 2 vorið 2021 en þau áform hafa verið sett á hilluna en með þremur flugstöðvum getur Brandenburg-flugvöllur tekið á móti 40 milljónum farþega á ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga