flugfréttir
Ingibjörg Arnarsdóttir ráðin til Isavia
- Tekur við stöðu framkvæmdarstjóra yfir fjármála- og mannauðssviði
Ingibjörg tekur sæti í framkvæmdastjórn Isavia og hefur störf þann 1. desember næstkomandi.
Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu sviði fjármála og mannauðs hjá Isavia en Ingibjörg hefur mikla stjórnunarreynslu á vettvangi fjármála og mannauðs.
Nú síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármála-, mannauðs- og verkefnastjórnar hjá Reiknistofu bankanna. Þar hafði hún m.a. yfirumsjón með fjármálum fyrirtækisins, mannauðsmálum og verkefnastýringu.
Þar áður starfaði hún í átta ár hjá Valitor, fyrst sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og síðan sem framkvæmdastjóri stjórnunar- og mannauðs.
Ingibjörg er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á endurskoðun og meistaragráðu í fjármálum frá Cass Business School/City University í London.
Svið fjármála og mannauðs hjá Isavia er önnur tveggja stoðeininga sem er hluti af móðurfélagi Isavia, sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar. Sviðið sinnir þó jafnframt samstæðu Isavia í heild sinni.
„Við hjá Isavia hlökkum til að fá Ingibjörgu til starfa,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Það er ljóst að þekking hennar og reynsla, nú síðast hjá Valitor og Reiknistofu bankanna, mun koma Isavia til góða í þeim verkefnum sem fram undan eru.“
Ingibjörg tekur sæti í framkvæmdastjórn Isavia og hefur störf þann 1. desember næstkomandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.