flugfréttir
Bandaríkin íhuga að afnema ferðatakmarkanir til Evrópu
Farþegaflug yfir Atlantshafið á milli Bandaríkjanna og Evrópu hefur legið í dvala sl. 8 mánuði
Sagt er að ríkisstjórn Bandaríkjanna muni á næstunni aflétta ferðatakmörkunum á milli Bandaríkjanna og Evrópu en takmarkanirnar hafa haldið mest allri flugumferðinni yfir Atlantshafinu í algjöru lágmarki sl. 8 mánuði.
Takmarkanirnar hafa verið í gildi frá því í mars á þessu ári en með afléttingunni mun mögulega aftur komast á flugumferð á milli Norður-Ameríu og 28 Evrópulanda og þar á meðal milli Bandaríkjanna og Bretlands þar sem mesta flugumferðin hefur verið á milli yfir hafið.
Sérstök kórónuveirunefnd innan Hvíta Hússins, heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna og aðrar
stofnanir vestanhafs hafa lýst yfir stuðningi við tillöguna um að aflétta ferðatakmörkunum
en Donald Trump, Bandaríkjaforseti, á enn eftir að taka ákvörðun um lokaniðurstöðuna.
Fimm aðilar innan bandaríska þingsins auk yfirmanna hjá nokkrum bandarískum flugfélögum
segjast hafa heimildir fyrir því að ferðatakmarkanirnar séu að taka enda mjög fljótlega.
Þessar fregnir koma á sama tíma og met hefur verið slegið í fjölda kórónaveirusmita í
Bandaríkjunum en í gær greindust yfir 180.000 ný smit í landinu.
„Ráðuneytið er tilbúið að styðja þessa tillögu með því skilyrði að afléttingin verði gerð
með öruggum hætti svo að alþjóðaflug geti hafist á ný til og frá Bandaríkjunum“, segir
talsmaður samgönguráðuneytisins í Bandaríkjunum.
Það gæti þó sett strik í reikninginn að smitum fer nú ört fjölgandi í Evrópu og mörg lönd í álfunni gæti ekki heimilað flug til og frá Bandaríkjunum en eins og staðan er í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.