flugfréttir

Þingmenn vilja stöðva útrás Wizz Air í Noregi

- Ósáttir við ofurlág fargjöld sem norsku flugfélögin ná ekki að keppa við

27. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:37

Í desember mun Wizz Air fljúga 12 mismunandi flugleiðir í innanlandsflugi í Noregi

Nokkrir stjórnmálamenn á norska þinginu eru ekki sáttir við innréið ungverska lágfargjaldafélagsins á innanlandsmarkaðinn í Noregi en nokkrir þingmenn ætla að leita til samkeppnisyfirvalda til þess að stemma stigu við útrás félagsins.

Wizz Air hóf í haust að fljúga á milli áfangastaða í Noregi og hefur félagið boðið upp á mjög lág fargjöld í norsku innanlandsflugi.

Knut Arild Hareide, samgönguráðherra Noregs, segir að áframhaldandi umsvif Wizz Air í Noregi geti ekki gengið svona til lengri tíma.

Sverre Myrli hjá norska verkamannaflokknum segist vilja fá upp á borðið verkalýðsmál sem snúa að Wizz Air er kemur að greiðslum flugmanna í lífeyrissjóði þar sem hann tekur fram að þeir þurfa sjálfir að greiða í slíka sjóði auk veikindapeninga og hægt er að segja þeim upp störfum fyrirvaralaust.

Þá tekur Arne Nævre hjá sósíalíska vinstriflokknum í sama streng og vill hann helst stöðva innreið Wizz Air í norsku innanlandsflugi og spyr hann hvort að Noregur séu í þeirri stöðu að ekkert sé hægt að gera vegna reglugerða Evrópusambandsins.

Margir stjórnmálamenn í Noregi eru ósáttir við að engin lög séu til staðar til að takmarka umsvif Wizz Air í landinu í innanlandsfluginu sem veitir Widerøe, SAS og Norwegian samkeppni sem erfitt er að keppa við.

Á þeim forsendum stendur til að senda beiðni til samkeppnisyfirvalda um að taka málið fyrir og fara fram á að málið verið skoðað þar sem Wizz Air gæti mögulega verið að nýta sér aðstæðurnar vegna kórónaveirufaraldursins með því að undirbjóða flugfargjöld í innanlandsflugi á meðan norsk flugfélög eru í vanda með að halda úti fullri flugáætlun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga