flugfréttir
Kína fyrirskipar skoðun á hjólastelli á 737 Classic þotum
Um 68 Boeing 737 Classic þotur eru í umferð í Kína
Flugmálayfirvöld í Kína hafa gefið frá sér tilmæli til þeirra kínverskra flugrekenda sem hafa Boeing 737 Classic þotur í flota sínum þar sem þeim er ráðlagt að framkvæma skoðun á hjólabúnaði eftir að sprungur fundust í hjólastelli á tveimum þotum af þeirri kynslóð.
Fyrirmælin ná til þeirra flugvéla sem eru af gerðinni Boeing 737-300, - 400 og Boeing 737-500 en nýlega fundust
sprungur þar sem boltar festast við efri bitann sem hreyfir hjólastellið.
Ekki kemur fram hvaða flugfélag eða flugfélög eru um að ræða en í yfirlýsingu segir að flugvélunum
hafi verið flogið yfir 4.600 og yfir 2.900 flugferðir sem er undir þeim 15.000 flugferðum sem talið er að dugi
fyrir endingartíma. Þar af leiðandi er flugrekendum gert að framkvæma skoðunina sem fyrst.
Um 650 þotur af gerðinni Boeing 737 Classic eru í notkun í heiminum í dag og þar af 68 í Kína en stór
hluti af þeim eru þotur sem notaðar eru í fraktflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.