flugfréttir

Yfir 400 flugferðum aflýst vegna skorts á flugmönnum

- Ekki margar áhafnir til að anna eftirspurninni yfir Þakkargjörðarhátíðina

30. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:20

Delta Air Lines hafði ekki næga flugmenn tiltæka til þess að anna eftirspurninni yfir Þakkargjörðarhátiðina

Delta Air Lines neyddist til þess að aflýsa hundruðum flugferða yfir Þakkargjörðarhátíðina í seinustu viku vegna skorts á flugmönnum.

Fram kemur að félagið hafi ekki náð að anna eftirspurninni sem varð meðal þeirra Bandaríkjamanna sem voru á faraldsfæti yfir hátíðirnar og hafði félagið ekki nógu marga flugmenn og áhafnir til að fljúga öllum þeim farþegum sem höfðu bókað flug.

Bandarísk stjórnvöld höfðu reynt að ráðleggja fólki frá því að ferðast yfir Þakkargjörðarhátiðirnar og halda sig frekar heima en í stað þess fylltust flugvellir vestanhafs af farþegum og hafði bandaríska samgönguöryggisstofnunin (TSA) aldrei séð annan eins fjölda farþega frá því að heimsfaraldurinn hófst.

Metfjöldi farþega á bandarískum flugvöllum

Met var sett í fjölda flugfarþega frá því að kórónaveirufaraldurinn hófst og fóru um 5 milljónir farþega um bandaríska flugvelli þarsíðustu helgi sem er mesti fjöldi sem mælst hefur frá því í mars.

Delta Air Lines þurfti að aflýsta 300 flugferðum sl. fimmtudag og 160 flugferðum á föstudag vegna skorts á áhöfnum en flugáætlun félagsins var komin aftur í eðlilegt horf á laugardag og voru flestir farþegar sem kusu að endurbóka flug um helgina og eftir helgi.

Vandamálið má meðal annars rekja til þess að 1.800 flugmenn hjá Delta þáðu að taka við starfslokasamningi fyrr á þessu ári eftir að Delta Air Lines ákvað að fækka flugmönnum vegna faraldursins og fékk félagið því þær uppsagnir í bakið yfir Þakkargjörðarhátíðina.

„Þessi niðurskurður varð til þess að félagið stóð uppi með of lítinn fjölda af hæfum flugmönnum sem voru tiltækir til þess að fljúga þegar eftirspurnin fór á flug yfir hátíðirnar“, segir í tilkynningu frá flugmannafélaginu ALPA.

Fram kemur að uppsögn flugmanna geti komið sér illa þegar á þarf að halda þar sem flugmenn verða ekki lengur hæfir samkvæmt reglugerðinni til að koma umsvifalaust til baka til starfa og þá geti ekki hvaða flugmenn sem er flogið hvaða flugvélategund sem er sem skapar rekstarvanda ef fyrirvarinn er stuttur.

Þá kom einnig upp vandamál hjá American Airlines yfir hátíðirnar en félagið þurfti þó aðeins að fella niður tvær flugferðir sem var rakið til skorts á flugmönnum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga