flugfréttir

Uppfærsla á leiðsögubúnaði mistókst í Rússlandi

- Flugmenn þurfa að nota gömlu flugkortin fyrir 49 rússneska flugvelli

1. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:11

Brösuleg hefur gengið að uppfæra flugleiðsögukerfið á vissum stöðum í Rússlandi að undanförnu

Fyrirtækið sem sér um útgáfu á flugleiðsöguupplýsingum í Rússlandi hefur varað rússnesk flugfélög við því að skortur sé á réttum leiðsögugögnum fyrir 49 flugvelli í landinu.

Fram kemur að flugfélög verði annað hvort að notast við hefðbundin flugkort úr pappír eða fá leiðsögn frá flugumferðarstjórum ef til stendur að fljúga til þessara flugvalla.

Rússneska flugumferðarstjórnin Rosaviatsia hefur unnið að því að innleiða nýjar uppfærslur á flugleiðsögutækjum að undanförnu en hinsvegar kom flugfélagið Aeroflot auga á hnökra er flugmenn félagsins lentu í vandræðum með að samhæfa búnað um borð í flugvélum að leiðsögutækjunum auk þess sem villur komu upp er til stóð að stilla á vissar tíðnir.

Einn af tveimur framleiðendum sem veitir leiðsögutækni til rússneska flugmálayfirvalda er fyrirtækið Jeppesen en þegar kom að því að fá gögnin og setja þau upp í byrjun október kom í ljós að seinkun yrði á því og frestaðist það fram í nóvember.

Nú þegar staðfest er að nýja kerfið á að verða tilbúið þann 3. desember þá hefur komið í ljós að stór hluti af gagnagrunninum mun ekki innihalda nýjustu gögn sem ná til 49 flugvalla í Rússlandi og hefur því þurft að senda út fyrirmæli til flugmanna um að notast við flugkort á pappírsformi þess í stað.

Einhverjar viðbætur verða uppfærðar fyrir 30. desember næstkomandi en eftir þann dag mun samt vanta réttar flugleiðsöguupplýsingar sem ná til yfir 30 flugvalla og þar á meðal flugvalla sem eru í nágrenni Moskvu.

Framkvæmdarstjóri rússneska lágfargjaldafélagsins Pobeda hefur meðal annars sent fyrirspurn til Rosaviatsia og beðið flugmálayfirvöld um að fresta því að taka nýja kerfið í notkun þann 3. desember en flugfélagið segist annars neyðast til þess að fella niður flugferðir þangað til vandamálið hefur verið lagað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga