flugfréttir
Tvö dómsmál fyrir jól gætu haft áhrif á framtíð Norwegian
- Gjaldþrotavernd félagsins á Írlandi tekin fyrir auk málaferla við Boeing
Fimm Dreamliner-þotur Norwegian í geymslu á Gardermoen-flugvellinum í Osló í Noregi
Desember gæti orðið örlagaríkur mánuður fyrir Norwegian þar sem framtíð félagsins gæti skýrst betur þar sem tvö aðskilin mál verða tekin fyrir dómstólum beggja megin Atlantshafsins.
Annars vegar er um að ræða beiðni Norwegian um gjaldþrotavernd á Írlandi fyrir nokkur dótturfyrirtæki félagsins til þess að fá grið frá kröfuhöfum. Lánadrottnar hafa þegar hótað
málaferlum við flugfélagið norska vegna vangoldinna leigugjalda á flugvélum félagsins.
Stjórn Norwegian mun mæta fyrir rétti þann 7. desember næstkomandi á Írlandi en flugfélagið hafði
fengið tímabundna gjaldþrotavernd á Írlandi en til þess að fá varanlega vernd, svo félagið nái að
fá svigrúm til þess að aðlaga reksturinn að breyttum aðstæðum, þarf að taka málið fyrir hjá írskum dómstólum.
Átta dögum síðar, eða þann 15. desember, mun félagið þurfa að mæta fyrir rétti í Illinois í Bandaríkjunum varðandi skaðabótamáls Norwegian á hendur Boeing en flugfélagið norska fer
fram á yfir 130 milljarða króna í bætur frá flugvélaframleiðandanum vegna þess skaða sem félagið
hefur orðið fyrir vegna kyrrsetningu á Boeing 737 MAX þotunum en Boeing hefur þegar óskað þess að því máli verði frestað.
Málið gegn Boeing nær einnig yfir þau vandamál sem Norwegian hefur gengið í gegnum
með Dreamliner-þoturnar en flugáætlun félagsins með Boeing 787 þoturnar raskaðist ítrekað
í nokkur ár þar sem upp komu vandamál með Trent 1000 hreyflana á þotunum.
Norwegian þurfti á sínum tíma að taka Dreamliner-vélarnar úr umferð vegna vandans og taka á leigu
þotur frá flugvélaleigum til þess að fylla í skarðið og halda úti flugáætlun sinni yfir Atlantshafið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.