flugfréttir

150 milljarða króna tap hjá SAS

- Sjá fram á að eftirspurnin verði komin í þokkalegt horf árið 2022

3. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:24

Taprekstur SAS árið 2020 nam 150 milljörðum króna samanborið við 11 milljarða króna hagnað í fyrra

SAS (Scandinavian Airlines) tilkynnti í dag um afkomu félagsins eftir rekstrarárið 2020 sem nær frá nóvember 2019 til október 2020 og varð alls 150 milljarða króna tap á rekstri félagsins á því tímabili.

Til samanburðar þá varð 11 milljarða króna hagnaður á rekstri SAS á fjármálaárinu þar á undan árið 2019 en tapreksturinn í ár má að mesta rekja til kórónaveirufaraldursins.

„Afkoma félagins á öllum ársfjórðungum í ár varð verulega fyrir áhrifum af faraldrinum og verulega dró úr eftirspurn eftir farmiðum í sumar. Þá olli fjölgun smita í Evrópu í haust því að eftirspurnin hélt áfram að vera í lágmarki“, segir Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóri SAS.

SAS hafði dregið úr sætaframboði í október sem nemur 40% af upphaflegri flugáætlun þar sem 65 prósent af þeim svæðum sem SAS flýgur til eru með strangar ferðatakmarkanir í gildi.

Flugfélagið hefur einnig varið verulegum fjárhæðum í að endugreiða farþegum þá farmiða sem þeir höfðu bókað og þann 1. desember sl. átti félagið enn eftir að endugreiða farmiða upp á 13 milljarða króna.

Til að styrkja lausafjárstöðu SAS hefur félagið tekið úr umferð 21 flugvél sem fara fyrr út flotanum en gert var ráð fyrir auk þess sem félagið hefur samið við Airbus um að fresta afhendingum á átta Airbus A320neo þotum og tveimur Airbus A350-900 breiðþotum.

Gustafson tekur fram að SAS búi sig nú fyrir mjög krefjandi tíma fyrir árið 2021 en vonir séu bundnar við að dreifing bóluefnis eigi eftir að verða til þess að eftirspurn eftir flugi fari að aukast á ný á síðari hluta ársins.

„Þegar árið 2022 gengur í garð þá ætti eftirspurnin að fara að ná svipuðum hæðum og hún var áður en heimsfaraldurinn skall á. Kannski ekki alveg sú sama en sennilega næstum því“, segir Gustafson.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga