flugfréttir
Rolls-Royce ætlar að einblína á hreyfla fyrir minni þotur
- Sjá ekki fram á mikla eftirspurn eftir hreyflum fyrir breiðþotur á næstunni

Rolls-Royce hefur verið leiðandi í þróun og framleiðslu á hreyflum fyrir stórar breiðþotur
Breski hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hefur tilkynnt að fyrirtækið ætli að einblína á næstunni á framleiðslu á hreyflum fyrir meðalstórar flugvélar en fyrirtækið hefur sl. ár sérhæft sig í þróun og framleiðslu á hreyflum fyrir stórar breiðþotur.
Rolls-Royce segir að þar sem töluverð niðursveifla virðist vera í eftirspurn eftir breiðþotum og á þeim markaði sem snýr að langflugi þá leitar fyrirtækið leiða til þess að komast í gegnum
krísuna vegna heimsfaraldursins.
Fyrirtækið hefur þegar haft viðræður við Airbus um þróun á nýrri kynslóð hreyfla fyrir minni farþegaþotur sem gætu mögulega komið á markaðinn fyrir árið 2035 á meðan óvíst er um hvenær aftur verður
eftirspurn eftir stórum hreyflum fyrir breiðþotur.
Rolls-Royce hefur þegar unnið að UltraFan hreyflinum og áttu tilraunir á jörðu niðri með þann hreyfil að hefjast á næsta ári en því hefur verið frestað vegna faraldursins. Sá hreyfill átti meðal annars að knýja áfram nýju Boeing 797 framtíðarþotuna en óvíst er hvenær og hvort að Boeing eigi eftir að hefja framleiðslu á þeirri þotu.
Simon Burr, yfirmaður yfir tæknideild Rolls-Royce, segir að með UltraFan hreyflinum og núverandi
framleiðslu á Trent-hreyflinum, gæti fyrirtækið boðið upp á mjög viðtækt úrval af hreyflum fyrir allar
stærðir af þotum.
Hinsvegar er framhaldið á heimsfaraldrinum það óljóst að Rolls-Royce neyðist til að bíða
og sjá hver þróunin verður og hversu hratt flugiðnaðurinn á eftir að koma til baka.
Rolls-Royce hefur unnið að því að aðlaga rekstur og framleiðsluna að breyttum aðstæðum og
sagði fyrirtækið meðal annars upp 1.400 manns í nóvember og eiga þær aðgerðir að tryggja
framtíð Rolls-Royce.


22. desember 2020
|
Á meðan flest flugfélög hafa dregið úr áformum sínum um langflug til fjarlægra áfangastaða þá hefur kóreska flugfélagið T´way Air gert samkomulag við flugvélaleigufyrirtæki um leigu á þremur Airbus A

20. desember 2020
|
Talið er að litlar líkur séu á því að Norwegian muni hefja aftur langflug yfir Atlantshafið þótt að flugfélagið norska nær að þrauka í gegnum heimsfaraldurinn.

26. janúar 2021
|
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines er bjartsýnt á horfurnar í fluginu í ár og ætlar félagið að endurráða um 400 flugmenn fyrir sumarið.

26. febrúar 2021
|
Nokkur bresk flugfélög og þar á meðal easyJet og einnig ferðaskrifstofur í Bretland hafa tilkynnt að þau hafa orðið vör við gríðarlega eftirspurn og mikinn kipp í bókunum á flugi á bókunarsíðum eftir

26. febrúar 2021
|
Flytja þurfti flugvallarstarfsmann í Rússlandi á sjúkrahús eftir að hann hlaut augnskaða eftir að áhöfn flugvélar, sem hann var að leiðbeina inn á flughlað, blikkaði lendingarljósunum á stæðinu er ha

25. febrúar 2021
|
Tékkneska flugfélagið Czech Airlines (CSA) hefur lýst því yfir að til standi að segja upp öllu starfsfólki félagsins en um 430 starfsmenn starfa hjá félaginu.

25. febrúar 2021
|
Hreyflablaðið sem brotnaði í PW4000 hreyfli á Boeing 777 farþegaþotu hjá United Airlines, sem olli bilun í hreyfli sl. helgi með þeim sökum að sprenging kom upp í hreyflinum, hafði verið notað í um 3

24. febrúar 2021
|
Norwegian leitar nú leiða til þess að rifta þeim samningum sem félagið hafði gert fyrir nokkrum árum síðan við Boeing og Airbus varðandi pantanir á nýjum farþegaþotum.

24. febrúar 2021
|
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) segir að til standi að taka niður og fleygja samansettu leifum af flaki af júmbó-þotu frá Trans World Airlines (TWA) en flug TWA800 fórst skömmu eftir flugtak

23. febrúar 2021
|
Í þeim tilgangi að bjarga rekstri ítalska flugfélagsins Alitalia þá hefur Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnt að ríkisstjórn landsins ætli að taka yfir stjórn flugfélagsins á næstunni.

23. febrúar 2021
|
Talið er líklegt að málmþreyta í hreyflablaði sé orsök bilunar sem kom upp í hreyfli á farþegaþotu af gerðinni Boeing 777-200 hjá United Airlines sem varð til þess að sprenging kom upp í hreyflinum sk