flugfréttir

Sjóflugvél rakst utan í skip eftir lendingu

4. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:15

De Havilland DHC-6-300 Twin Otter sjóflugvél frá Trans Maldivian Airways

Rannsóknarnefnd flugslysa á Maldívíeyjum gaf nýlega út bráðabirgðarskýrslu varðandi atvik sem átti sér stað er sjóflugvél rakst með væng utan í skip eftir lendingu.

Atvikið átti sér stað þann 22. október sl. er flugvél frá flugfélaginu Trans Maldivian Airways af gerðinni de Havilland DHC-6-300 Twin Otter var ný lent við strendur Medhafushi-eyju á Maldívíeyjum eftir flug frá höfuðborginni Male.

Þegar skurði á loftskrúfu á hreyflum var snúið til að mynda öfugan snúning til að stöðva flugvélina af kom upp ósamræmi á afli milli hreyflanna sem olli því að flugvélin breytti stefnu í lendingarbruninu sem varð til þess að flugvélin leitaði til vinstri á vatninu.

Flugstjóri vélarinnar tók umsvifalaust við stjórninni til þess að halda beinni stefnu en án árangurs og rakst vinstri vængendi flugvélarinnar utan í skip sem var bundið við bryggju. Bæði flugvélin varð fyrir skemmdum á væng og hreyfli auk þess sem skemmdir urðu á skrokk skipsins.

Flugstjórinn kom flugvélinni að landgangi við ströndina þar sem farþegar fóru frá borði en engan um borð í flugvélinni sakaði og ekki heldur um borð í skipinu þar sem það var mannlaust.

Í ljós kom bilun í hreyflinum og þá hafði áhöfn, sem flaug sömu flugvél deginum áður, tilkynnt um að þeir hefðu þurft að hætta við flugtak frá Male vegna máttleysis í vinstri hreyflinum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga