flugfréttir
Paris Air Show 2021 blásin af
Paris Air Show flugsýningin átti að fara fram í júní á næsta ári
Hætt hefur verið við flugsýningina Paris Air Show sem átti að fara fram næsta sumar vegna heimsfaraldursins.
Skipuleggjendur flugsýningarinnar í París sendu í dag frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að vegna óvissu með framhaldið vegna COVID-19 faraldursins hafi verið ákveðið að aflýsa sýningunni sem átti að fara fram frá 21. til 27. júní.
Stjórn sýningarinnar tók þess ákvörðun í samráði við samtök fyrirtækja í flugvélaiðnaði í Frakklandi og kemur fram að ákvörðunin hafi verið óumflýjanleg í ljósi ástandsins.
Paris Air Show er ein af elstu flugsýningum heims en sú fyrsta var haldin árið 1909 og hefði sýningin í ár verið sú 54. í röðinni frá upphafi en næsta Paris Air Show flugsýningin verður því haldin að öllu óbreyttu í júní árið 2023.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.