flugfréttir

Fyrstu flug Wizz Air Abu Dhabi hefjast 15. janúar

- Hefja flugrekstur með tveimur Airbus A321neo þotum til að byrja með

9. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:15

Fyrsta Airbus A321neo þotan í litum Wizz Air Abu Dhabi

Wizz Air Abu Dhabi, nýja systurflugfélag Wizz Air, stefnir á að hefja fyrsta áætlunarflugið frá Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þann 15. janúar eftir áramót.

Markmið Wizz Air er að færa merki flugfélagsins og þjónustu þess til Persaflóasvæðisins og bjóða upp á lágfargjaldaflug til austurhluta Evrópu og norðausturhluta Afríku og til áfangastaða við Miðjarðarhafið.

Fyrstu áfangastaðirnir sem Wizz Air Abu Dhabi mun fljúga til frá Abu Dhabi eru Alexandria í Egyptalandi, Aþena, Búkarest, Búdapest, Katowice, Kutaisi í Georgíu, Larnaca, Odessa, Skopje, Sofía og Yerevan.

Wizz Air Abu Dhabi mun hefja flugrekstur með tveimur nýjum Airbus A321neo þotum og þá munu fjórar til viðbótar bætast við flotann á fyrstu sex mánuðunum.

Wizz Air á von á 257 nýjum þotum úr Airbus A320 fjölskyldunni á næstu sex árum og þar af verða 237 af gerðinni A320neo/A321neo.

Wizz Air Abu Dhabi var stofnað í maí á þessu ári og ætlaði félagið sér að hefja flugrekstur fyrr en vegna heimsfaraldursins frestuðust þau áform.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga