flugfréttir

Stökk um borð til að stöðva af RV-6 sem tókst á loft

- Undarlegt flugslys til rannsóknar í Texas

10. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:04

Flugvél af gerðinni Vans RV-6

Lítil flugvél af gerðinni Van’s RV-6 tókst óvænt á loft fyrir slysni er flugvélin var að gangast undir viðhaldsskoðun í Texas í vikunni en einstaklingur, sem náði að hoppa upp í flugvélina til þess að stöðva hana af, komst ekki lífs af þar sem flugvélin brotlenti skömmu síðar.

Tímaritið Plane & Pilot Magazine segir að slysið sé hið undarlegasta þar sem enn er ekki vitað hvort að maður sem náði að fara um borð í flugvélina, hafi verið flugmaður eða ekki.

Það sem er vitað er að flugvélin var í skoðun í flugskýli á flugvellinum í Galveston í Texas þann 8. desember sl. og segir að flugvélin hafi farið af stað þrátt fyrir að hjól hennar voru skorðuð af með klossum.

Manneskja sem var nálægt á svæðinu náði að hlaupa á eftir flugvélinni og fór um borð og mögulega í því skyni að hafa ætlað að ná stjórn á flugvélinni en án árangurs.

Flak vélarinnar við lestarteina nálægt bænum Hitchcock í Texas sl. þriðjudag

Flugvélin fór hinsvegar á loft og segja sjónarvottar að flugtakið hafi verið mjög óstöðugt og líkt og að það væri engin við stjórn á vélinni og flaug vélin því næst yfir Galveston-flóann og flaug um það bil 20 kílómetra þar til hún brotlenti nálægt lestarteinum hjá bænum Hitchcock.

Hjúkrunarkona sem býr nálægt slysstaðnum kom hlaupandi út og fór að flakinu til að veita aðstoð en í ljós kom að manneskjan sem var í flugvélinni var látin. Hjúkrunarkonan hringdi því næst á lögreglu og lét vita af slysinu.

Í Plane & Pilot Magazine kemur fram að mörgum spurningum sé ósvarað varðandi slysið og er til að mynda ekki vitað hvernig það gerðist að flugvélin hafi farið af stað en mögulegt er að það hafi gerst við uppkeyrslu á mótor. Þá er enn ekki vitað hvort að manneskjan sem hoppaði um borð hafi verið verið flugmaður eða ekki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga