flugfréttir
Tæplega 7.000 farþegar með Icelandair í nóvember
Boeing 757 þota Icelandair á Keflavíkurflugvelli
Tæplega 7 þúsund farþegar flugu með Icelandair í seinasta nóvembermánuði eða alls 6.965 farþegar.
Í nóvember í fyrra voru 748.453 farþegar sem flugu með Icelandair og er því um að ræða samdrátt upp á 97% milli ára.
Sætanýtingin í seinasta mánuði mældist 32.4% en í nóvember árið 2019 mældist sætanýtingin 78.6 prósent.
Þá var sætaframboð í nóvember 5 prósent af því framboði sem var í sama mánuði í fyrra.
Þess má geta að í október þá flugu 7.502 farþegar með Icelandair og fækkaði farþegum í nóvember
því um 537 á milli mánaða.
Enn er allt millilandaflug um Keflavíkurflugvöll í algjöru lágmarki vegna heimsfaraldursins en til að mynda eru aðeins tvö farþegaflug áætluð í dag sem var flug á vegum Icelandair til Kaupmannahafnar í morgun og þá er annað flug áætlað í kvöld til Wroclaw í Póllandi á vegum Wizz Air.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.