flugfréttir
Reyndi að klifra upp á vængling á Boeing 737 þotu
- Féll fram af vængnum og var handtekinn
Maðurinn missti takið á vænglingnum og féll af vængnum og skall í jörðina þar sem hann var að lokum handtekinn
Kalla þurfti til lögreglu á McCarran-flugvellinum í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær eftir að karlmaður náði að komast upp á væng á Boeing 737 þotu og reyndi að klifra upp á vænglinginn („winglet“).
Boeing 737-900ER þotan, sem er frá flugfélaginu Alaska Airlines, var að undirbúa brottför frá Las Vegas til Portland í Oregon þegar maðurinn birtist á vængnum.
Á meðfylgjandi myndbandi, sem farþegi um borð tók upp, má sjá hvar maðurinn fer meðal
annars úr skónum áður en hann reynir að klifra upp á „Split-Scimitar“ vænglinginn.
Að minnsta kosti tveir lögregluþjónar fór út á vænginn og gengu að manninum til þess að handsama hann
en skömmu síðar missti maðurinn takið og féll fram af vængnum og skall í jörðina þar
sem hann var yfirbugaður og handtekinn.
Atvikið átti sér stað á McCarran-flugvellinum í Las Vegas í gær rétt eftir hádegi að íslenskum tíma
Ekki er vitað hversu mikil meiðsl maðurinn hlaut við það að falla fram af vængnum
en yfirvöld tilkynntu skömmu eftir atvikið að maðurinn eigi við geðræn vandamál
að stríða.
Samkvæmt fréttamiðlum vestanhafs var maðurinn ekki farþegi um borð í flugvélinni en hann
hafði komist inn á flugvallarsvæðið með því að klifra yfir grindverkið sem umlykur flugvöllinn.
Fresta þurfti fluginu um stund þar sem framkvæma þurfti skoðun á vængnum og varð því 4 klukkustunda seinkun á fluginu.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.