flugfréttir
Fyrsta ATR 72-600F fraktflugvélin afhent til FedEx

FedEx Express hefur fengið afhenta sína fyrstu ATR 72-600F fraktflugvél
Vöruflutningarisinn FedEx Express hefur fengið afhenta sína fyrstu ATR skrúfþotu sem var sérstaklega smíðuð sem fraktflugvél en fyrirtækið hefur eingöngu haft ATR flugvélar í flotanum sem var breytt úr farþegaflugvél í fraktflugvél.
Fraktflugvélin nefnist ATR 72-600F og er um að ræða fyrsta eintakið af þeim 30 flugvélum sem voru
pantaðar af FedEx Express með möguleika á tuttugu flugvélum til viðbótar og var fyrstu flugvélinni flogið til Shannon-flugvallarins á Írlandi þar sem ASL Airlines Ireland
mun sjá um flugrekstur fyrir hönd FedEx Express Feeder.
FedEx Express mun fá um sex ATR 72-600F flugvélar á ári næstu fimm árin en fyrirtækið hefur einn stærsta
fraktflugsflota í heimi með um 456 flugvélar í flota sínum og af þeim eru 364 flugvélar sem fljúga undir „Feeder“ merkinu.
ATR flugvélin getur borið 8.9 tonn af frakt og kemur flugvélin með stórri frakthurð þar sem hægt er að koma fyrir 75 rúmmetrum af vörum sem gerir flugvélina mjög hentuga í fraktflutningum til smærri svæði á stuttum flugleiðum.


10. desember 2020
|
Lítil flugvél af gerðinni Van’s RV-6 tókst óvænt á loft fyrir slysni er flugvélin var að gangast undir viðhaldsskoðun í Texas í vikunni en einstaklingur, sem náði að hoppa upp í flugvélina til þess að

23. febrúar 2021
|
Talið er líklegt að málmþreyta í hreyflablaði sé orsök bilunar sem kom upp í hreyfli á farþegaþotu af gerðinni Boeing 777-200 hjá United Airlines sem varð til þess að sprenging kom upp í hreyflinum sk

4. janúar 2021
|
Fraktflugvél af gerðinni Airbus A300-600F frá vöruflutningarisanum DHL fékk fugl í hreyfil í flugtaki í gær á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam.

26. febrúar 2021
|
Nokkur bresk flugfélög og þar á meðal easyJet og einnig ferðaskrifstofur í Bretland hafa tilkynnt að þau hafa orðið vör við gríðarlega eftirspurn og mikinn kipp í bókunum á flugi á bókunarsíðum eftir

26. febrúar 2021
|
Flytja þurfti flugvallarstarfsmann í Rússlandi á sjúkrahús eftir að hann hlaut augnskaða eftir að áhöfn flugvélar, sem hann var að leiðbeina inn á flughlað, blikkaði lendingarljósunum á stæðinu er ha

25. febrúar 2021
|
Tékkneska flugfélagið Czech Airlines (CSA) hefur lýst því yfir að til standi að segja upp öllu starfsfólki félagsins en um 430 starfsmenn starfa hjá félaginu.

25. febrúar 2021
|
Hreyflablaðið sem brotnaði í PW4000 hreyfli á Boeing 777 farþegaþotu hjá United Airlines, sem olli bilun í hreyfli sl. helgi með þeim sökum að sprenging kom upp í hreyflinum, hafði verið notað í um 3

24. febrúar 2021
|
Norwegian leitar nú leiða til þess að rifta þeim samningum sem félagið hafði gert fyrir nokkrum árum síðan við Boeing og Airbus varðandi pantanir á nýjum farþegaþotum.

24. febrúar 2021
|
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) segir að til standi að taka niður og fleygja samansettu leifum af flaki af júmbó-þotu frá Trans World Airlines (TWA) en flug TWA800 fórst skömmu eftir flugtak

23. febrúar 2021
|
Í þeim tilgangi að bjarga rekstri ítalska flugfélagsins Alitalia þá hefur Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnt að ríkisstjórn landsins ætli að taka yfir stjórn flugfélagsins á næstunni.

23. febrúar 2021
|
Talið er líklegt að málmþreyta í hreyflablaði sé orsök bilunar sem kom upp í hreyfli á farþegaþotu af gerðinni Boeing 777-200 hjá United Airlines sem varð til þess að sprenging kom upp í hreyflinum sk