flugfréttir
Nýr galli kemur í ljós í Dreamliner-þotunum
Dreamliner-þotur í samsetningarsal hjá Boeing
Nýr galli hefur uppgötvast á Dreamliner-þotunum sem hefur orðið til þess að Boeing hefur ákveðið að framlengja skoðunum og sérstöku eftirliti sem sett var á fyrr á þessu ári vegna vegna Boeing 787 þotnanna.
Gallinn varðar örlitlar rifur við samskeyti á skrokknum þar sem klæðningin á búknum kemur saman og segir að þau samskeyti séu ekki eins slétt eins og þau ættu að vera. Ef ekkert er aðhafst þá gæti komið
upp burðarþolsþreyta mun fyrr en hönnunin gerir ráð fyrir.
Fram kemur að um annmarka séu að ræða sem gildir um nýlegar Dreamliner-þotur og hafa verkfræðingar
hjá Boeing og bandarísk flugmálayfirvöld komist að því að ekki nein ógn stafi af fyrrgreindum galla
er kemur að flugöryggi.
Fyrr á þessu ári var farið fram á að úttekt skildi gerð á stélhluta á skrokki Dreamliner-vélanna
en nú er líklegt er að farið verði fram á skoðun á öllum búknum eftir síðustu uppgötvun.
Greint var frá þessari uppgötvun í gær og segir að það sé ástæðan fyrir því að engar Dreamliner-þotur
voru afhentar í nóvember sem var fyrsti mánuðurinn sem að Boeing afhenti engar Dreamliner-þotur
sem hefur ekki gerst síðan árið 2013.
Gallinn er sá fjórði sem uppgötvast er snýr að skrokknum á Dreamliner-vélunum og hafa gallarnir komið fram við gæðaprófanir eftir lokasamsetningu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.