flugfréttir
Ótímabært að borgin skipuleggi annað en flugvöll í Vatnsmýri
- Samgönguráðherra segir að borgin sé ekki að standa við sitt samkomulag
Ráðherra telur framgöngu borgarinnar nú varðandi skipulag í Vatnsmýri, ekki til þess fallna að uppfylla sínar skuldbindingar og rími illa við samkomulagið.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert athugasemdir við aðalskipulag Reykjavíkurborgar um íbúðabyggð í Vatnsmýri í stað Reykjavíkurflugvallar.
Ríki og borg skrifuðu undir samkomulag í nóvember í fyrra um rannsóknir á möguleikum þess að byggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni en
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að með því samkomulagi hafi Reykjavíkurborg skuldbundið sig til að viðhalda umhverfi
og rekstrarmöguleikum vallarins óbreyttum, þar til önnur ákvörðun verði tekin um annan jafngóðan eða betri kost fyrir flugvöll.
Ráðherra telur framgöngu borgarinnar nú varðandi skipulag í Vatnsmýri, ekki til þess fallna að uppfylla sínar skuldbindingar og rími illa við samkomulagið.
Það sé ótímabært að skipuleggja svæðið undir annað en flugvöll á meðan ekki er lengra komið í tímalínu gildandi samkomulags um mögulegt flugvallarstæði í Hvassahrauni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Sigurð Inga samgönguráðherra í Flugvarpinu, hlaðvarpi um flugmál. Þar er einnig fjallað um gagnrýni á nýlegt útboð í innanlandsflugi sem nú er í ferli hjá kærunefnd útboðsmála en ráðherra segir augljóst að brotalamir hafi verið í því ferli.
Þá er fjallað um flugstefnu í samgönguáætlun, loftbrú innanlands, frumvarp umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð og margt fleira. Í fréttatilkynningu
segir að þetta sé eitthvað sem áhugafólk um flugmál ætti ekki að láta framhjá sér fara.
Nálgast má viðtalið við Sigurð Inga í Flugvarpinu hérna
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.