flugfréttir

Síðasta Boeing 737 þotan yfirgefur flota Air Baltic

17. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:20

Síðasta Boeing 737 þotan til að yfirgefa flugflota Air Baltic var ferjuð í dag frá Riga í Lettlandi til Tékklands

Flugfélagið Air Baltic hefur tekið úr umferð síðustu Boeing 737 þotuna og hefur þotan verið afhent til viðhalds- og eignarstýringarfyrirtækisins Magnetic MRO.

Air Baltic hætti að nota Boeing 737 þoturnar í áætlunarflugi í maí á þessu ári en síðasta þotan var á dögunum formlega tekin úr flotanum og samanstendur floti flugfélagsins í dag einungis af Airbus A220-300 þotum.

Air Baltic hefur haft 23 Airbus A220 þotur í flotanum að undanförnu en á dögunum fékk félagið tvær þotur afhentar til viðbótar af þeirri gerð og samanstendur flugflotinn í dag af 25 þotum.

Félagið hefur því fengið helminginn afhentan af þeim Airbus A220-300 þotum sem pantaðar voru upphaflega frá Bombardier er vélarnar hétu CSeries CS300 en félagið pantaði 50 eintök af þotunni.

Síðasta Boeing 737 þotan sem félagið hefur skilað var af gerðinni Boeing 737-300 og er hún 21 árs gömul en þotunni var flogið í dag frá Riga í Lettlandi til Ostrava í Tékklandi.

Air Baltic fékk fyrstu Boeing 737 þotuna afhenta árið 2003 sem var þota af gerðinni Boeing 737-500 og þá fékk félagið fyrstu Boeing 737-300 þotuna afhenta árið 2007. Félagið hafði alls 20 Boeing 737 þotur í flotanum þegar mest var.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga