flugfréttir
Talið hæpið að Norwegian hefji aftur flug yfir Atlantshafið
Kyrrsettar Boeing 787 þotur frá Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Talið er að litlar líkur séu á því að Norwegian muni hefja aftur langflug yfir Atlantshafið þótt að flugfélagið norska nær að þrauka í gegnum heimsfaraldurinn.
Þetta kemur fram í norska dagblaðinu Dagens Næringsliv þar sem segir að meirihluti meðlima í stjórn Norwegian fara fram á að hætt verði við öll áform um áframhaldandi flug milli Evrópu og Norður-Ameríku og eru flestir í stjórn félagsins á því máli að flugfélagið eigi að einblína
á flugleiðir milli Skandinavíu og Evrópu.
Markaðssérfræðingurinn Lars-Daniel Westby, sem hefur fylgst náið með þróun mála hjá Norwegian, telur
að rekstur félagsins í fluginu yfir Atlantshafið eigi ekki eftir að halda áfram og mögulega sé sá hluti á enda.
„Norwegian verður að koma fram með áreiðanlega viðskiptaáætlun fyrir dómi á Írlandi og sannfæra
dóminn að sú áætlun eigi eftir að verða arðbær“, segir Westby en Jacob Schram, framkvæmdarstjóri
Norwegian, segir að enn sé ekki búið að ákveða örlög flugsins yfir Atlantshafið.
Norwegian var orðið umsvifamikið í lágfargjaldarflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku en gríðarleg umsvif í því flugi sl. ár kom félaginu í miklar skuldir og þá sérstaklega vegna vandamála
með Dreamliner-vélarnar.
Norwegian flýgur í dag aðeins nokkrar flugleiðir innan Noregs og eru flestar flugvélar í flotanum í langtímageymslu
vegna heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.