flugfréttir
Nýr björgunarpakki fyrir flugfélög vestanhafs samþykktur
Það er bandaríska öldungardeildarþingið sem hefur samþykkt björgunarpakkann
Ríkisstjórn Bandaríkjana hefur samþykkt nýjan björgunarpakka fyrir bandarísk flugfélög upp á 15 milljarða Bandaríkjadali sem samsvarar 1.929 milljörðum króna.
Mitch McConnell, leiðtogi meirihluta repúblikana í öldungardeild bandaríska þingsins, segir að
þetta sé sú fjárhagsaðstoð sem flugiðnaðurinn í landinu hefur beðið eftir en enn á eftir
að afgreiða björgunarpakkann sem verður gert á næstu vikum.
Þrátt fyrir að nýi björgunarpakkinn sé allt að 10 milljörðum lægri en farið var fram á þá á hann
samt að verða til þess að hægt verður að endurráða um 32.000 starfsmenn sem sagt var upp
í október. Fram kemur að fyrstu greiðslur til flugfélaganna er að vænta kringum gamlársdag.
Bandarísk flugfélög hafa þegar fengið 3.216 milljarða króna í fjárhagsaðstoð í haust sem fór að mestum hluta í launagreiðslur
og til þess að koma í veg fyrir uppsagnir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.