flugfréttir

Engar nýjar þotur verða afhentar til easyJet árið 2021

- EasyJet frestar afhendingum á 22 Airbus A320neo þotum um 4-5 ár

22. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:27

Airbus þotur frá easyJet á Gatwick-flugvellinum í London

EasyJet hefur gert samkomulag við Airbus um að fresta afhendingum á 22 farþegaþotum af gerðinni Airbus A320neo um allt að 5 ár vegna þeirra áhrifa sem heimsfaraldurinn hefur haft á starfsemi félagsins.

Þoturnar 22 áttu að afhendast frá frá árinu 2022 til ársins 2024 en easyJet hefur farið fram á að fá þoturnar þess í stað afhentar frá árinu 2027 til 2028.

Þoturna voru pantaðar árið 2013 og þá ætlar félagið einnig að breyta afhendingum á fimmtán þotum til viðbótar sem stóð til að afhenda frá 2022 til ársins 2024.

Þetta mun verða til þess að easyJet mun ekki fá neina nýjar þotur afhentar frá Airbus á næsta ári en átta munu afhendast árið 2022, sjö árið 2023 og 18 árið 2024.

Johan Lundgren, framkvæmdarstjóri easyJet, segir að sveiganleiki á afhendingum hafi aldrei verið eins mikilvægur og einmitt nú þar sem framtíðin er mjög óviss og óvíst varðandi hvað er í vændum í flugiðnaðinum.

EasyJet hefur einnig náð að semja við Airbus um að hraða afhendingum ef ástandið breytist óvænt til hins betra með litlum fyrirvara.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga