flugfréttir
T´way Air pantar sínar fyrstu breiðþotur
Tölvugerð mynd af Airbus A330-300 þotu í litum T´way Air
Á meðan flest flugfélög hafa dregið úr áformum sínum um langflug til fjarlægra áfangastaða þá hefur kóreska flugfélagið T´way Air gert samkomulag við flugvélaleigufyrirtæki um leigu á þremur Airbus A330-300 breiðþotum sem verða fyrstu breiðþotur félagsins.
T´way Air, sem er þriðja stærsta lágfargjaldaflugfélag Suður-Kóreu, stefnir meðal annars á að hefja flug til
Evrópu með flugi til Zagreb auk þess sem til stendur að hefja flug til Hawaii, Singapore og til Sydney
í Ástralíu.
T´way Air hefur komið upp sérstöku teymi sem er ætlað að móta flotastefnu og rekstarmál félagsins er varðar langflugsstarfsemi
en félagið áætlar að hefja flug með breiðþotum seint á næsta ári.
T´way hefur eingöngu Boeing-þotur í flota sínum í dag sem samanstendur af 28 Boeing 737-800 þotum en félagið á einnig
von á að fá tíu Boeing 737 MAX 8 þotur afhentar á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.