flugfréttir

Síðasta júmbó-þotan yfirgefur flota Virgin

- „Pretty Woman“ flogið vestur um haf og fer í flota Atlas Air

22. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:32

Á 19 árum, frá árinu 2001, hafði G-VROY flogið 11.800 flugferðir í flota Virgin Atlantic Airways

Breska flugfélagið Virgin Atlantic Airways hefur formlega kvatt Boeing 747 júmbó-þotuna sem hafa sagt skilið við flugfélagið eftir að hafa verið í flota þess í allri 36 ára sögu félagsins.

Virgin Atlantic hætti að fljúga áætlunarflug með júmbó-þotunni í vor og var síðasta flugið með Boeing 747 flogið þann 5. maí sl. og hefur júmbó-þotunum síðan þá verið flogið í flugvélakirkjugarða reglulega þar til síðasta þotan fór í gær vestur um haf.

Síðasta júmbó-þotan til að yfirgefa flotann var „Pretty Woman“ sem bar skráninguna G-VROY og var henni flogið frá Heathrow-flugvellinum í London til McCarran-flugvallarins í Las Vegas í Bandaríkjunum.

„Pretty Woman“ á þó áframhaldandi líf í vændum þar sem hún mun fara til nýrra eigenda sem er flugfélagið Atlas Air sem mun taka hana í rekstur.

„Pretty Woman“ mun fara í flota bandaríska flugfélagsins Atlas Air

Þetta markar einnig endalokin á brottförum með Boeing 747 farþegaþotum frá London Heathrow en British Airways tók einnig allar sínar júmbó-þotur úr umferð í vor vegna heimsfaraldursins en flugfélagið breska hafði þó áætlað að hafa júmbó-þotuna í rekstri í að minnsta kosti eitt ár til viðbótar.

„Pretty Woman“ (G-VROY) er 19 ára gömul júmbó-þota af gerðinni Boeing 747-400ER og var hún upphaflega afhent til Alitalia en Virgin fékk hana í sinn flota í júní árið 2001.

Síðan þá hefur „Pretty Woman“ flogið 11.800 flugferðir fyrir Virgin og þar af 2.600 flug til Orlando í Flórída.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga