flugfréttir

Segir mikla vaxtarmöguleika framundan eftir faraldurinn

- Mesta hreinsun í flugiðnaðinum sem O´Leary hefur orðið vitni að

27. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:02

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að kórónaveirufaraldurinn eigi eftir að skapa mikil tækifæri fyrir sum flugfélög til þess að ná að vaxa enn frekar til þess að sinna mörkuðum sem hafa verið yfirgefnir af öðrum flugfélögum sem eru ekki lengur að sinna eftirspurn á vissum svæðum.

Framkvæmdarstjórinn segir að heimsfaraldurinn gæti skapað enn stærri tækifæri fyrir sum flugfélög heldur en hryðjuverkaárásirnar árið 2001 og fjármálakreppan árið 2008.

O´Leary segir að ein stærsta „hreinsun“ sé að eiga sér stað í flugiðnaðinum sem megi rekja til faraldursins og tekur hann fram að Ryanair sé að nýta sér þessa stöðu meðal annars og eigi flugfélagið í viðræðum við fjölda flugvalla í Evrópu.

Nefnir hann að um 100 milljón flugsæti eigi eftir að þurrkast út á einu bretti vegna faraldursins hjá samkeppnisflugfélögum í Evrópu á næstu 18 mánuðum sem skapar tækifæri fyrir önnur flugfélög til þess að fylla í skarðið.

„Á mínum 30 ára ferli í bransanum þá hef ég aldrei áður séð eins mikla hreinsun og afleiðingarnar eftir heimsfaraldurinn í Evrópu verða tækifæri fyrir mikla útrás“, segir O´Leary sem tekur fram að þau flugfélög sem geta nýtt sér þessi tækifæri hvað mest séu lágfargjaldarflugfélög þar sem þau verða þau fyrstu til þess að ná sér á strik.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga