flugfréttir
Lufthansa Cargo hættir með MD-11 um áramótin
- Fljúga síðasta flugið með MD-11 í vikunni til Suður-Ameríku
McDonnell Douglas MD-11 fraktþota frá Lufthansa Cargo
Lufthansa Cargo mun á næstunni fljúga síðasta fraktflugið með hinni þriggja hreyfla fraktþotu McDonnell Douglas MD-11 og lýkur þar með 22 ára sögu þotunnar í flota félagsins.
Lufthansa Cargo mun hætta með MD-11 þar sem nýjar fraktþotur af gerðinni
Boeing 777F koma í þeirra stað í fraktflutningum.
Fraktflugfélagið hefur haft nítján MD-11 þotur í rekstri í gegnum árin en að
undanförnu hafa fimm þotur verið í flotanum ásamt níu Boeing 777F þotum.
Á Fésbókarsíðu Lufthansa Cargo segir að síðasta fraktflugið með McDonnell
Douglas MD-11 verði flogið í þessari viku til Suður-Ameríku og geta aðdáendur
þotunnar séð hana í síðasta sinn á flugvöllunum í borgunum Sao Paulo, Curitiba, Recife, Buenos
Aires og í Montevideo.
Eftir að Lufthansa Cargo verður búið að taka MD-11 þoturnar úr umferð verða aðeins þrjú
flugfélög í heiminum eftir til að fljúga þessum þotum sem öll eru fraktflugfélög en þau
eru FedEx Express, United Parcel Service (UPS) og Western Global Airlines.
Síðasta flugfélagið sem flaug McDonnell Douglas MD-11 þotunum í farþegaflugi var hinsvegar
hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines en félagið flaug síðasta farþegaflugið í heimi
með MD-11 í október árið 2014.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.