flugfréttir
Gera þriðju tilraun til þess að selja vörumerki Adria Airways
Adria Airways varð gjaldþrota þann 30. september árið 2019
Gjaldþrotastjórn slóvenska flugfélagsins Adria Airways reynir nú að gera þriðju tilraun til þess að selja merki og markaðsímynd flugfélagsins sem varð gjaldþrota í september í fyrra.
Óskað hefur verið eftir tilboðum í þrjár útgáfur af vörumerki félagsins auk þess sem nokkur
lén eru til sölu og er lágmarksboðið 10.000 evrur sem samsvarar 1.5 milljón króna.
Lágmarksboðið hefur verið lækkað um 90% en áður var farið fram á að minnsta kosti 15 milljónir króna
fyrir vörumerki flugfélagsins ásamt lénunum adria.si, flyadria.si, adria-airways.is, auk fleiri léna.
Þrátt fyrir árangurslausa tilraun til að selja vörumerki og ímynd hiðs gjaldþrota flugfélags þá
segir gjaldþrotastjóri Adria Airways að töluverður áhugi sé til staðar fyrir Adria-merkinu.
Nú þegar er búið að selja flugrekstarleyfi flugfélagsins fyrir 7 milljónir króna auk flugskólans, Adria
Airways Flight School, sem seldist á aðeins 1.1 milljón króna en verðmætasta eign skólans voru kennsluréttindi flugskólans sem gefur skólanum leyfi til þess að stunda flugkennslu og útskrifa nýja flugmenn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.