flugfréttir

Fyrsta áætlunarflugið vestanhafs með 737 MAX

- Flug AA718 á leið frá Miami til LaGuardia í New York

29. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:01

Fyrsta áætlunarflugið með Boeing 737 MAX í Bandaríkjunum hóf sig á loft kl. 15:41 að íslenskum tíma

Á fjórða tímanum í dag hóf sig á loft fyrsta áætlunarflugið með Boeing 737 MAX þotunum í Bandaríkjunum eftir 20 mánaða hlé.

Um er að ræða flug á vegum American Airlines, flug AA718, frá Miami til LaGuardia-flugvallarins í New York og er flugið flogið með þotu af gerðinni Boeing 737 MAX 8 sem ber skráninguna N314RH.

Klukkan 16:58 var þotan stödd í 37.000 feta hæð yfir Suður-Karólínu og er áætlað að þotan lendi á LaGuardia-flugvellinum kl. 18:15 í kvöld að íslenskum tíma.

American Airlines hefur 31 Boeing 737 MAX þotu í sínum flota en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) afléttu flugbanni vegna Boeing 737 MAX þann 18. nóvember sl.

Boeing 737 MAX þotan við brottfararhliðið á flugvellinum í Miami í dag rétt fyrir brottför til LaGuardia í New York



Næsta bandaríska flugfélag til þess að hefja áætlunarflug að nýju með Boeing 737 MAX er United Airlines sem stefnir á að hefja flug með 737 MAX í febrúar en Southwest Airlines, sem hefur fengið flestar MAX þotur afhentar frá Boeing, segir að félagið ætli ekki að hefja flug með þotunum fyrr en næsta vor.

Það var hinsvegar brasilíska flugfélagið GOL Linhas Aereas sem flaug fyrsta áætlunarflugið í heiminum eftir kyrrsetninguna og var það flug flogið þann 9. desember í innanlandsflugi í Brasilíu.

American Airlines er þriðja flugfélagið í heimininum til þess að hefja flug að nýju með Boeing 737 MAX en AeroMexico byrjaði að fljúga þotunum aftur þann 21. desember og þá stefnir Copa Airlines í Panama á að hefja flug með 737 MAX þann 4. janúar eftir áramót.

American Airlines mun fljúga Boeing 737 MAX daglega á milli Miami og New York fram til 4. janúar en þá mun félagið bæta fleirum MAX þotum í leiðarkerfið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga