flugfréttir
Þrjár 777F þotur afhentar á einu bretti til Qatar Airways
Nýju Boeing 777F fraktþoturnar þrjár fyrir Qatar Airways
Boeing afhenti þrjár fraktþotur af gerðinni Boeing 777F á einu bretti til Qatar Airways um áramótin.
Þoturnar þrjár hófu sig á loft með hálftíma millibili frá Boeing-verksmiðjunum í Everett á leið í 14 tíma
afhendingarflug til Doha í Katar en afhendingin markar einnig afhendingu á tvö hundruðustu Boeing 777F
fraktþotunni sem afhent hefur verið frá upphafi.
Qatar Airways hefur verið í fremstu víglínu er kemur að fraktflugi frá því að heimsfaraldurinn hófst og hefur
félagið flogið yfir 500 sérstakar flugferðir með vistir og læknagögn.
Með Boeing 777F þotunum þremur telur fraktflugsfloti Qatar Airways 30 þotur eða 24 þotur af gerðinni
Boeing 777F en félagið hefur einnig fjórar Airbus A330-200F þotur og tvær Boeing 747-8F júmbó-þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.