flugfréttir
Fyrsta Airbus A220 þotan afhent til JetBlue
Fyrsta Airbus A220 þotan fyrir JetBlue Airlines
Bandaríska flugfélagið JetBlue Airlines byrjaði nýja árið með stæl er félagið fékk afhenta sína fyrstu Airbus A220 þotu sem framleidd var í verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum.
Þetta er fyrsta Airbus A220 þotan fyrir JetBlue af þeim 70 sem félagið pantaði og var þotan afhent til
félagsins á gamlárskvöld eftir afhendingarflug til Kennedy-flugvallarins í New York.
JetBlue segir að rekstarkostnaður A220 þotunnar verði allt að 30 prósentum lægri en við rekstur á Embraer E190
vélunum sem þotan mun leysa af hólmi.
JetBlue Airlines á von á 69 Airbus A220 þotum til viðbótar
C. Jeffrey Knittel, framkvæmdarstjóri Airbus í Bandaríkjunum, segir að þotan muni opna fleiri möguleika
fyrir JetBlue er kemur að leiðarkerfi félagsins auk þess sem að farþegar eigi eftir að finna fyrir betri upplifun
af ferðalaginu þegar þeir fljúga með Airbus A220 þotunum.
Í nóvember var búið að afhenda tæplega 140 Airbus A220 (CSeries) þotur til sjö flugfélaga sem eru
Air Sinai, airBaltic, Air Canada, Air Tanzania, EgyptAir, Korean Air og Swiss International Air Lines og
er JetBlue því áttunda flugfélagið til að fá þessa þotu afhenta.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.