flugfréttir
Enn eitt flugfélagið hættir með Boeing 747
Beoing 747 júmbó-þota frá China Airlines
Enn eitt flugfélagið hefur tilkynnt um endalok júmbó-þotunnar í farþegaflugi en taívanska flugfélagið China Airlines hefur ákveðið að hætta með Boeing 747-400 þoturnar í næsta mánuði.
Síðasta júmbó-þotuflug China Airlines verður flogið við hátíðlega athöfn þann 6. febrúar og er um að ræða útsýnisflug til Japans þar sem flogið verður að Fiji-eldfjallinu og til baka.
China Airlines hefur haft júmbó-þotur í flota sínum frá árinu 1975 frá því félagið fékk þá fyrstu afhenta sem var af gerðinni Boeing 747-100 en Boeing 747-400 þoturnar hefur félagið haft í rekstri í yfir 30 ár.
Þá hefur China Airlines einnig haft Boeing 747SP í flotanum og fékk félagið þá fyrstu afhenta árið 1977 og hafði félagið fjórar slíkar í rekstri til ársins 2000.
Félagið hefur hinsvegar 20 júmbó-fraktþotur í flota China Airlines Cargo af gerðinni Boeing 747-400F en 18 af þeim eru í rekstri í dag á meðan tvær eru í geymslu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.