flugfréttir
Deilur milli Qatar Airways og fjögurra landa senn á enda
- Hafa ekki fengið að fljúga um lofthelgi nálægt Doha síðan árið 2017
Flugfloti Qatar Airways á flugvellinum í Doha
Svo gæti farið að stjórnvöld í þremur löndum á Arabíuskaganum ætli loksins að leyfa Qatar Airways að fljúga í gegnum lofthelgi landanna á ný en löndin hafa í þrjú ár meinað Qatar Airways aðgengi að lofthelgi landanna.
Þetta hefur orðið til þess að flugvélar Qatar Airways hafa þurft að taka á sig krókaleið til þess að komast
til og frá borginni Doha þar sem félagið hefur höfuðstöðvar en málið hófst með pólitískum deilum árið 2017 er stjórnvöld í Sádí-Arabíu, Bahrain, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Eygptalandi ákváðu að banna Qatar Airways að fljúga í gegnum lofthelgi þessara landa þar sem löndin töldu að Qatar Airways væri orðið komið í of náið samstarf við Íran og væri óbeint að styðja við hryðjuverkastarfsemi í landinu.
Talsmaður innan bandarísku ríkisstjórnarinnar segir að á morgun verði nýr sáttmáli undirritaður er kemur að samstarfi
við ríki fyrir botni Persaflóa sem mun að öllum líkindum binda endi á það bann sem hefur verið í gildi á hendur Qatar Airways er kemur
að flugumferð um löndin fjögur.
Qatar Airways hafði í sumar meðal annars farið með málið til Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) á þeim forsendum að með þessu væru löndin að brjóta Chicago-sáttmálann sem undirritaður var
árið 1944 þar sem fram kemur að öll aðildarlönd eigi að tryggja óhefta og greiða flugumferð gegnum sína lofthelgi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.