flugfréttir
Boeing 737 fraktþota rann út af braut eftir lendingu í Keflavík
Fraktflugvélin eftir lendingu í morgun á Keflavíkurflugvelli / Ljósmynd: Víkurfréttir (Hilmar Bragi)
Fraktflugvél frá Bluebird Nordic rann út af flugbraut í morgun eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli þegar flugvélin var að yfirgefa brautina.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 737-400F, var að lenda á braut 29 í Keflavik eftir fraktflug frá
East Midlands-flugvellinum á Englandi rétt fyrir klukkan 8 í morgun en flugvélin fór út af þegar
hún var að beygja inn á akbraut („taxiway“) B1.
Nefhjól vélarinnar sökk ofan í jarðveginn fyrir utan brautina auk þess sem annað aðalhjólastellið endaði
einnig utan yfirlagsins í mjúklendi.
Ekki er vitað um hversu mikið tjón er á flugvélinni en tveir flugmenn voru þeir einu sem voru um borð í vélinni og
sakaði þá ekki.
Flugvélin, sem ber skráninguna TF-BBJ og er af gerðinni Boeing 737-476(SF), er 29 ára gömul, smíðuð árið 1991, og
var hún upphaflega afhent til Australian Airlines í febrúar árið 1991 en tveimur árum síðar fór hún til ástralska
flugfélagsins Qantas þar sem hún var í rekstri í 21 ár en Bluebird Cargo fékk hana í sinn flota árið 2015.
Í fréttum kemur fram að sérfræðingar frá rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) hafi farið á vettvang
í morgun til Keflavíkur skömmu eftir að tilkynnt var um atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.