flugfréttir

Norwegian mun skila yfir 70 þotum til leigusala

- Flestum þotum verður flogið til Shannon á Írlandi

7. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 08:19

Kyrrsettar Boeing 787 þotur frá Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló

Norwegian er byrjað að skila flugvélum til eigenda sinna sem félagið hefur haft á leigu sem er hluti af því að fækka vélunum í flotanum vegna heimsfaraldursins.

Flugfélagið norska vinnur að undirbúningi að því að ferja þotur úr langtímageymslu og verður þeim flogið meðal annars til Shannon-flugvallarins á Írlandi þar sem flugvélaleigur munu taka við vélunum aftur.

Að skila flugvélunum til leigusala er hluti að þeim skilyrðum sem Norwegian þarf að uppfylla vegna gjaldþrotaverndarinnar sem félagið sótti um á Írlandi en félagið byrjaði að skila fyrstu þotunum um miðjan desember.

Norwegian hefur nú þegar skilað sex Dreamliner-þotum til Shannon-flugvallarins sem höfðu verið í geymslu á Gardermoen-flugvellinum í Osló og í Stavanger en þær flugvélar eru í eigu flugvélaleigunnar AeroCap.

Sum írsk flugvélaleigufyrirtækja nota Shannon-flugvöll sem bækistöð fyrir viðhald og undirbúning á flugvélum sem fara eða koma úr leigu.

Talið er að Norwegian muni skila um 72 þotum sem fara til Írlands en stærri hluti flugflotans, sem telur 124 aðrar þotur, eru í eigu annarra aðila sem snertir ekki samkomulagið á Írlandi vegna gjaldþrotaverndarinnar.

Þess má geta að Norwegian skuldar um 4 milljarða evra í leigugjöld af flugvélum sem samsvarar 626 milljörðum króna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga