flugfréttir

Focus Aero Solutions fær leyfi til þjálfunar fyrir áhafnir

- Sjöunda leyfið sem er í gildi á Íslandi til þjálfunarfyrirtækis (ATO)

11. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:44

Þetta er sjöunda leyfið sem Focus Aero Solutions fær í hendur á Íslandi

Íslenska þjálfunarfyrirtækið (ATO) Focus Aero Solutions hefur fengið úthlutað leyfi frá Samgöngustofu er varðar þjálfun fyrir áhafnir og kemst fyrirtækið með því í hóp öflugustu þjálfunarstöðva landsins.

Leyfið sem Focus Aero Solutions fær í hendur frá Samgöngustofu er ellefta leyfið sem gefið er út hér á landi frá upphafi og það sjöunda sem er í gildi enn í dag til þess að annast þjálfun flugáhafna fyrir fjölstjórnarflugvélar á borð við Boeing 737 og fljótlega mun fyrirtækið hefja þjálfun á Boeing 757 og 767.

Stefnt er á að fyrirtækið öðlist frekari réttindi til þjálfunar á fleiri Boeing þotum sem og flugvélum í fjölskyldu Airbus en ATO leyfi hefur ekki verið gefið út af Samgöngustofu síðan 2016.

Focus sérhæfir sig í þjálfun flugmanna í gagnadrifinni flugþjálfun (Evidence Based Training - EBT) en sú aðferð hefur rutt sér til rúms í flugheiminum að undanförnu og er hún innleidd af Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) og Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) þó tiltölulega fá flugfélög nýti sér aðferðina.

Nýjung sem þessi í þjálfun áhafna felst í áherslum sem eru sérsniðnar að skilgreindum veikleikum og styrkleikum hvers flugfélags fyrir sig. Þar að auki mun Focus bjóða upp á lausnir til hagræðingar sem stuðla að auknu öryggi í gegnum regluvörslu og þjálfun starfsmanna flugfélaga innanlands sem utan.

Focus Aero Solutions var stofnað af þeim Arnari Jökli Agnarssyni, Arnari Má Baldvinssyni og Kára Kárasyni, flugstjórum frá Icelandair og Margréti Hrefnu Pétursdóttur, flugöryggis- og gæðastjóra, starfi sem hún gegnir einnig hjá flugfélaginu Play.

Starfsmenn Focus búa yfir viðamikilli þekkingu og reynslu á sviði flugsins og hafa verið í flugtengdum þjálfunar- og rekstarhlutverkum áhafna undanfarin 15-20 ár hjá flugfélögum á borð við Air Atlanta, Ryanair, Icelandair, WOW Air og Bláfugli.

Starfmenn Focus hafa einnig gengt hlutverkum innan Samgöngustofu, Flugmálastjórn Íslands og Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA).







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga