flugfréttir
Þota rakst með hreyfil utan í snjóskafl rétt fyrir flugtak

Frá vettvangi á Srinagar-flugvellinum í Kashmir-héraði í gær
Farþegaþota af gerðinni Airbus A321 rakst utan í snjóskafl er hún var að aka í átt að flugbraut fyrir flugtak á flugvellinum í borginni Srinagar í Kashmir-héraði á Indlandi í gær.
Þotan, sem er frá indverska flugfélaginu IndiGo, var á leið til Delhí með 231 farþega innanborðs þegar hægri hreyfill þotunnar rakst utan í stóran snjóskafl sem lá meðfram
akbrautinni með þeim afleiðingum að þotan stöðvaðist.
Kalla þurfti til flugvirkja og flugvallarstarfsmenn til þess að athuga með skemmdir á hreyflahlífinni en að lokum var ákveðið
að kalla til aðra þotu til svo hægt væri að koma farþegum á áfangastað.
Flugvallaryfirvöld segja að búið hefði verið að fjarlægja allan snjó á flugbrautum og á akbrautum samkvæmt reglugerð
sem flugvöllurinn fer eftir en það dugði samt sem áður ekki til í þetta skiptið.
Fleiri myndir:


28. október 2020
|
Fraktflugfélagið Kalitta Air hefur undirritað samning við GECAS Cargo um pöntun á þremur Boeing 777-300ERSF fraktþotum.

5. nóvember 2020
|
Stjórn Lufthansa telur ólíklegt að Airbus A380 þoturnar verða notaðar meira og er séð fram á að dagar risaþotunnar er því taldir hjá flugfélaginu þýska.

5. janúar 2021
|
Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að verja 5.7 milljörðum króna í styrki til minni flugvalla í Bandaríkjunum sem eru eingöngu ætlaðir einkaflugi og almannaflugi.

22. janúar 2021
|
Kanadíska flugfélagið WestJet flaug í gær fyrsta áætlunarflugið í Kanada með Boeing 737 MAX eftir 22 mánaða kyrrsetningu og er WestJet þá einnig fimmta flugfélagið í heiminum til að hefja áætlunarflu

22. janúar 2021
|
Breska flugfélagið Jet2.com og ferðaskrifstofan Jet2CityBreaks ætla að bjóða upp á flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands sumarið 2022 en flogið verður á milli Keflavíkurflugvall

21. janúar 2021
|
Búið er að fresta flugsýningunni AERO sem fram átti að fara í apríl í þýsku borginni Friederickshafen.

21. janúar 2021
|
Lítil eins hreyfils flugvél neyddist til þess að lenda á hraðbraut í Texas í Bandaríkjunum í gær eftir að upp kom bilun í mótor.

21. janúar 2021
|
Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines ætlar að fella niður allt langflug tímabundið til annarra heimsálfa til og frá Amsterdam frá og með morgundeginum.

21. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur lýst því yfir að ríkisstjórn Noregs ætli sér að styðja við bakið á flugfélaginu með fyrirhugaðri fjárhagsaðstoð.

20. janúar 2021
|
International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, mun kaupa spænska flugfélagið Air Europa fyrir helmingi lægra verð en upphaflega stóð til að greiða fyrir félagið þegar tilkynnt var u

19. janúar 2021
|
Breska flugfélagið Titan Airways verður annað flugfélagið til þess að taka í notkun fraktþotu af gerðinni Airbus A321 sem hefur verið breytt úr farþegaflugvél til þess að flytja eingöngu vörur.