flugfréttir
Eiga ekki von á fyrstu Boeing 777X fyrr en árið 2024
Tölvugerð mynd af Boeing 777-9 í litum flugfélagsins Emirates
Flugfélagið Emirates segir að svo gæti farið að félagið taki ekki við fyrstu Boeing 777X þotunni fyrr en árið 2024 en upphaflega stóð til að afhendingar á Boeing 777X þotunni myndu hefjast í fyrra.
Seinkun vegna vandamála
með GE9X hreyfilinn frá General Electric kom í veg fyrir þær áætlanir og var því næst stefnt á að Emirates fengi fyrstu
þotuna árið 2023 en nú telur Emirates að afhendingar hefjist ekki fyrr en árið 2024.
Lufthansa verður fyrsta flugfélagið til þess að fá Boeing 777X þotuna og er afhending á henni áætluð árið 2022
og á Emirates að verða næsta flugfélag til þess að fá Boeing 777X.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir hinsvegar að flest bendi til þess að von sé á enn frekari seinkun á afhendingum.
Emirates á von á 126 þotum af gerðinni Boeing 777X og er þeim ætlað
að leysa af hólmi Boeing 777-300ER þoturnar í flota félagsins en félagið hefur 129 þotur í rekstri af þeirri gerð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.