flugfréttir

Bandaríkin setja Comac á svartan lista

15. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:44

C919 tilraunarþota frá Comac

Bandarísk stjórnvöld hafa sett kínverska flugvélarframleiðandann Comac á svartan lista yfir þau kínversku kommúnistafyrirtæki sem standa í hernaðariðnaði.

Þetta gæti þýtt viðskiptabann á sölu á C919 farþegaþotunni vestanhafs sem þýðir að erfiðlega gæti reynst fyrir Comac að selja viðskiptavinum í Bandaríkjunum þotuna en í dag er flugvélaleigufyrirtækið GECAS eini viðskiptavinurinn sem hefur pantað þotuna.

Þessi ákvörðun kemur aðeins rétt áður en Donald Trump, Bandaríkjaforseti, mun láta af embætti en aðeins eru nokkrar vikur frá því að Comac rétt náði að sleppa við að enda á lista sem nefndist „Military End User“ (MEU) sem þýðir að framleiðandinn hefði þurft að uppfylla sérstakar kröfur til þess að fá að selja þoturnar til Bandaríkjanna.

En þar sem Comac er nú komið á svarta listann bætist framleiðandinn í hóp annarra fyrirtækja sem þegar hafa endað á listanum sem eru meðal annars kínverska flugfélagið Hainan Airlines og systurfélagið Grand China Air.

Listinn sem um ræðir var tekinn í gagnið árið 1999 af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna en með honum er reynt að greina þau fyrirtæki sem tengjast með einhverjum hætti hernaðariðnaðinum í Kína.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga