flugfréttir
Boeing 737 MAX þoturnar fá að fljúga aftur í Kanada
Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur Air Canada
Kanadísk flugmálayfirvöld hafa gefið út vottun fyrir Boeing 737 MAX sem þýðir að allar MAX þotur í Kanada geta hafið sig til flugs að nýju frá og með næstkomandi miðvikudegi auk þess sem 737 MAX vélar geta flogið um kanadíska lofthelgi.
Í yfirlýsingu frá kanadískum flugmálayfirvöldum segir að allar Boeing 737 MAX þotur geti byrjað
að fljúga aftur í Kanada svo lengi sem þær uppfylli ákveðin skilyrði er varðar uppfærslu á hugbúnaði
fyrir svokallað MCAS-kerfi.
Flugmálayfirvöld í Kanada hafa lokið ítarlegri úttekt á Boeing 737 MAX þotunum sem hefur
varið í næstum tvö ár og gefið úr fyrirmæli um þau atriði sem þurfa að vera klár áður en 737 MAX vélarnar
geti byrjað að fljúga aftur og verða þá NOTAM skilaboð fjarlægð sem í dag fara fram á að þotur
af þessari gerð megi ekki fljúga í kanadískri lofthelgi.
Flugfélagið WestJet verður fyrsta flugfélagið í Kanada til að byrja að fljúga MAX-þotunum á ný
eftir 22 mánaða flugbann og verður fyrsta flugið með 737 MAX farið næstkomandi fimmtudag sem
er áætlunarflug á milli Calgary og Toronto.
Air Canada, sem einnig hefur Boeing 737 MAX þotur í sínum flota sem hafa verið kyrrsettar í tæp
tvö ár, hyggst byrja að fljúga sínum þotum þann 1. febrúar næstkomandi.
Þriðja kanadíska flugfélagið, Sunwing Airlines, sem hefur fjórar 737 MAX 8 þotur í flotanum, hefur
hinsvegar ekki tekið ákvörðun varðandi hvenær félagið ætlar að byrja að fljúga sínum þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.