flugfréttir
Hlutafé Isavia aukið um 15 milljarða
- Ráðist í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli
Gengið var frá 15 milljarða króna hlutafjáraukningu á hluthafafundi Isavia sem haldinn var þann 12. janúar síðastliðinn en hlutafjáraukningunni er ætlað að mæta rekstrartapi vegna COVID-19
Hlutafjáraukningin gerir félaginu kleift að hefja vinnu við uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli á ný. Ljóst er að ákvörðunin um að auka hlutafé í Isavia skapar fjölda nýrra starfa á framkvæmdatímanum,
þar með talið strax á þessu ári.
„Það er gríðarlega mikilvægt að við verðum reiðubúin þegar flugumferð verður orðin álíka og fyrir heimsfaraldur. Fram að því getum við ráðist í framkvæmdir sem miða að því að gera Keflavíkurflugvöll samkeppnishæfari en áður. Það skilar sér til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem starfa á flugvellinum, og ferðaþjónustunnar í heild,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
„Það er ljóst að við hjá Isavia getum lítið gert til að hafa áhrif á það hvenær ferðatakmörkunum í heiminum verður aflétt en við getum haft mikil áhrif á það hvernig okkur reiðir af á komandi árum. Það má ekki gleyma því að hlutafjáraukningin veitir okkur líka svigrúm til að mæta mismunandi sviðsmyndum út úr COVID-19 og á sama tíma auðvelda flugfélögum að hefja flug á ný þegar þar að kemur, m.a. með markaðsstuðningi. Okkur er falin mikil ábyrgð að sinna einum af lykilinnviðum landsins og við ætlum okkur að standa undir þeirri ábyrgð“.
Fyrirhuguðum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli er ætlað að styrkja samkeppnishæfni flugvallarins og tengistöðvarinnar með því að bæta þjónustu við viðskiptavini, bæta aðstöðu flugvéla og farþega, stytta afgreiðslutíma og auka þannig afköst og skilvirkni hans. Áætlanir gera ráð fyrir að þeim framkvæmdum, sem fyrirhugað er að ráðast í að svo stöddu verði að fullu lokið árið 2025.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.