flugfréttir

Norska ríkið reiðubúið að aðstoða Norwegian

- Hafa meiri trú á nýrri rekstaráætlun félagsins og tilbúnir að aðstoða félagið

21. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 11:16

Hluti af flugflota Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló

Norska flugfélagið Norwegian hefur lýst því yfir að ríkisstjórn Noregs ætli sér að styðja við bakið á flugfélaginu með fyrirhugaðri fjárhagsaðstoð.

Ákvörðun norska ríkisins kom í kjölfar nýrrar rekstaráætlunar sem Norwegian birti en í henni er meðal annars gert ráð fyrir því að félagið muni ekki halda áfram lágfargjaldarflugi yfir Atlantshafið til Norður-Ameríku þar sem félagið ætlar að einblína eingöngu á flug innan Evrópu.

Þá stefnir Norwegian á að draga úr skuldum félagsins niður í tæpa 300 milljarða króna og safna nýju fjármagni fyrir allt að 75 milljarða sem mun gera rekstur félagsins sjálfbæran á ný.

Þessi nýja viðskiptaáætlun hefur svo sannarlega látið norska ríkið skipta um skoðun en ríkisstjórn Noregs hafði í október sl. haust neitað því alfarið að veita Norwegian styrk af neinu tagi sem knúði félagið til þess að fara fram á gjaldþrotavernd á Írlandi.

„Áætlunin þeirra virðist vera mun markvissari en sú sem við sáum í október sem er ástæða þess að við erum mun jákvæðari núna fyrir því að leggja okkar af mörkum“, segir Iselin Nybø, iðnaðarráðherra Noregs.

Hinsvegar eru nokkrar forsendur sem Norwegian þarf að uppfylla til þess að fá aðgang að láni frá norska ríkinu og þarf félagið til að mynda að ná að safna fyrst um 68 milljörðum króna inn í reksturinn.

Þá vill ríkisstjórn Noregs vera viss um að Norwegian geti haldið áfram uppi áreiðanlegum flugsamgöngum til og frá Noregi eftir að heimsfaraldurinn er á enda.

„Með nýja viðskiptaáætlun og vilyrði fyrir aðstoð frá norska ríkinu þá erum við bjartsýn á að við náum að laða að fjárfesta og þá náum við að fara í gegnum endurreisnarferlið“, segir Jacob Schram, framkvæmdarstjóri Norwegian.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga