flugfréttir
KLM aflýsir öllu langflugi tímabundið
Flugvélar KLM Royal Dutch Airlines á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam í Hollandi
Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines ætlar að fella niður allt langflug tímabundið til annarra heimsálfa til og frá Amsterdam frá og með morgundeginum.
KLM hefur tekið þessa ákvörðun vegna hertari sóttvarnaraðgerða á vegum hollensku ríkisstjórnarinnar
sem reynir nú að sporna við mikilli útbreiðslu kórónuveirusmita þar í landi.
Alls eru um að ræða 270 vikulegar brottfarir í áætlunarflug í langflugi en nýjar reglur sem taka
í gildi á föstudag kveða á um að allir farþegar, og þar á meðal áhafnir, þurfa að framvísa
neikvæðum niðurstöðum úr sýnatöku fyrir brottför til Hollands.
Þetta þýðir að ef áhöfn reynist vera smituð og sýnataka reynist vera jákvæð erlendis þá á KLM
á hættu á því að viðkomandi áhöfn geti ekki flogið til baka til Amsterdam og hefur félagið því
ákveðið frekar að fella niður allar flugferðir í langflugi auk þess sem félagið mun aflýst fjölda flugferða
innan Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.