flugfréttir
AERO flugsýningunni frestað fram á sumar
Frá AERO flugsýningu í Friederickshafen
Búið er að fresta flugsýningunni AERO sem fram átti að fara í apríl í þýsku borginni Friederickshafen.
Sýningin bætist því í hóp þeirra mörgu flugviðburða í heiminum sem hefur verið slegið á frest vegna heimsfaraldursins eða aflýst með öllu.
AERO átti að hefjast þann 21. apríl í vor en sýningunni hefur verið frestað fram í miðjan júlí en
þess má geta að í fyrra var sýningunni algjörlega aflýst og fór hún ekki fram það árið.
Á meðan margir skipuleggjendur að flugsýningum bæði í Bandaríkjunum, í Evrópu og víðar hafa ýmist frestað eða aflýst viðburðum og ráðstefnum á þessu ári þá hafa forsvarsmenn Sun´n Fun tilkynnt nýlega að sú flughátíð muni fara fram í Flórída í apríl í vor.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.